Þar sem stórir hlutir gerast...;)
Leitarbox

06.04.2006 00:04:33 / Áróra :D

Suma dreymir gull og græna skóga

Við skulum byrja þessa "færslu" á tilgangslausum upplýsingum:
  • Ég, prívat og persónulega, þoli ekki þegar fólk er alltaf að skipta um heimasíður. Þá þarf maður að breyta slóðinni í tenglum, og leggja nýja slóð á minnið, og þar sem minnið mitt er ekki uppá mjög marga fiska, þá á ég það til að gleyma nýjum slóðum og það getur tekið mig langann tíma að muna þær...
Að þessu sögðu, ætla ég að koma öllum, og þá sérstaklega mér, mjög á óvart..

Ég er engu skárri!!

Já haldiði ekki að ég hafi fengið mér nýja síðu...  Fussumsvei..! Ég sem ætlaði að halda mér við þessa svo lengi sem ég nennti að blogga.... En auðvitað kom annað uppá teninginn..

Ég fann þetta líka geðveika kerfi bara gat ekki stillt mig...

En nýja síðan er hér: www.arora.bloggar.is

Þar sem ég er mjög upptekinn námsmaður, þá er ég ekki búin að setja neitt mikið inná síðuna í bili, en þetta kemur allt saman með kalda vatninu. Ég er hægt og rólega að læra á þetta og er ekkert að stressa mig...

Endilega kíkjið og kvittið...! Koma svo fólk..! Ég vil vita hverjir eru að kíkja á mig ;) Þið hljótið að geta fundið einhver nokkur orð til að setja í gestabókina, er það ekki?? :haha:

Ég er nýbúin að blogga þar (enda miklu skemmtilegar að blogga þar sem ég hef það ekki á hættunni að öll skriffinskan mín eyðist út :D ) Kíkjið bara þangað..

Over and out

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 17:30:31 / Áróra :D

klínísk kókómjólk

ohh ég þoli ekki að finna titla á bloggið mitt.

En seinustu dagar hafa flogið áfram, og já ég geri mér grein fyrir því að ég segi þetta í hverju einasta bloggi sem ég hef skrifað síðan um áramótin eða eitthvað.. hehe

Um helgina passaði ég Tuma & Steinunni með henni Höllu minni, og svo kom Sigþór aðeins í heimsókn. Það var mjög gaman, horfðum á Idol, pöntuðum pizzu og skemmtum okkur mjög vel :haha: Svo eftir það fórum við á rúntinn og fórum svo heim að sofa bara :)
Á laugardaginn svaf ég vel og lengi... gerði reyndar mjög fátt þennan dag :S Fór jú aðeins út að keyra með Höllu og fór svo bara heim. Man eiginlega ekki hvað ég gerði. Ég fór svo  í leikhús á Litlu Hryllingsbúðina klukkan 10 :haha: þetta var snilldar leikrit, þótt ég hafi orðið soldið hrædd í  því :S En síðan eftir það fór ég til Elvu, náði svo í Höllu, skutlaði þeim síðan á Egó en ég, félagsskíturinn sjálfur, fór heim að horfa á sjónvarpið...:$
Á sunnudaginn vaknaði ég um 12 leitið og gerði eitthvað lítið held ég... Jú svo kom Elva til mín og við fórum í Glerártorg og ég keypti mér úlpu og hárspöng (og spennu sem brotnaði strax :evil: ) Kíktum svo á Eddu í Bónusvideo, og leigðum Just Like Heaven.. Svo fórum við heim, fengum okkur að borða....og svo kom Sigþór og Halla og við fórum að horfa á myndina.. og síðan kíktum við aðeins á Madagascar..! Þessi mynd er bara endalaust fyndin!  Svo fóru allir hem og ég sofnað einhverntíman..hehe

Semsagt, prýðileg helgi bara :haha:

þessi vika sem er að byrja núna verður aldeilis stöppuð af vekefnum og prófum... en ég bara get ekki komið mér í þannig skap fyrr en á morgun... Það er svo ótrúlega gott veður og ég er engannvegin í stuði fyrir lærdóm núna..!

Eeeen blíðan kallar, ætla út að keyra..

Veriði sæl að sinni

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 15:46:49 / Áróra :D

snjór snjór snjór...

Já það snjóar og snjóar.!! Þetta er alveg æðisslegt.. :haha:

En þessi vika hefur nú liðið jafn hratt og allar hinar á þessu ári... Er reyndar ekki búin að gera neitt sérstakt í þessari viku.. bara sona hangs hingað og þangað :P hehe

í gær þurfti ég nú að bregða til örþrifaráða... Það er búið að snjóa svo mikið undanfarið að ég, sem bý í kjallaraherbergi, þurfti bara að gjöra svo vel og fara út og moka snjó frá glugganum mínum, svo ég mundi ekki bara kafna í nótt. það var búið að snjóa svo mikið að það var ekkert grín að moka þessu frá, líka því að það var búið að falla snjór af þakinu, beint fyrir framan gluggann minn.. En þetta hófst og ég lifði nóttina af.. En aldrei er maður nú ánægður, núna er allof kalt hérna inni.. hehe

Kennara fíflin eru síðan búin að hrúga á okkur verkefnum og prófum alveg hingað og þangað þessa og næstu viku..þannig að ég verð bara að drukkna í verkefnum fram að páskafríi. og Vá hvað ég hlakka til þegar þetta verður allt búið...! Reyndar finnst mér ekkert leiðnlegt að vinna þessi verkefni, þó að ég geti alveg viðurkennt að prófin eru ekkert spes.. :$ Ég var til dæmis að vinna í enskuverkefni á þriðjudaginn sem ég átti að skila í dag, en svo mætti kennarinn ekki..en það er nú önnur saga :) Svo er próf í náttúrufræði á mánudaginn, próf í LoveStar á þriðjudaginn, og fullt af verkefnaskilum :S En já nóg um skólann....

Núna um helgina er Egó með tónleika í Sjallanum, spurning hvort maður fari... Ég er ekki alveg búin að ákveða mig... :| Þetta kemur bara allt í ljós...
En svo um næstu helgi er Söngkeppni Framhaldsskólanna fyrir sunnan, og mig langar geðveikt að fara... En allt lítur út fyrir að ég sé ekki að fara :S En það er eins með það og allt annað, það kemur bara í ljós :)

Meira hef ég ekki að sega, sem er frásögu færandi :klikk:

Þannig að ég segi þetta bara fínt í bili...

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 21:35:23 / Áróra :D

Wave faster noughty little monkey!!

Enn ein helgin búin.. Þessi helgi var alveg með eindæmum skemmtileg.. Hef uppgötvað hvað það er miklu auðveldara að skrifa punkta um það sem gerist hjá mér, í staðin fyrir að skrifa einhverja voða ritgerð, þannig að ég ætla bara að halda mig við punktana..

Föstudagur
  • Skóli frá 8-14:40
  • Gerði svo eitthvað skemmtilegt þangað til að ég fór að vinna kl 4- hálf 8.
  • Eftir vinnu fór ég bara heim og fékk mér að borða og horfði á Idol með pabba og stelpunum :D
  • Eftir það fórum ég, Sigþór, Halla og Elva á rúntinn og skemmtum okkur prýðilega, allavega ég :haha:
  • Halla kom svo heim með mér og við horfðum á Madagascar og sofnuðum yfir henni.
Laugardagur
  • Vöknuðum, tókum okkur til og fórum í bæinn
    • Ætluðum að kaupa okkur eitthvað sniðugt til að vera í um kvöldið, en allt kom fyrir ekki og við versluðum ekki neitt..!
  • Edda bauð okkur svo í skúffuköku, og þar hittum við Elvu og Anton :)
  • Ég skutlaði svo Höllu heim og við Edda fórum í Bónus, þar sem ég hitti Jónínu :D og svo fórum við bara eitthvað að rúnta...
  • Náði síðan í Höllu og við skiluðum Eddu heim, og við Halla fórum til Elvu, því við ætluðum að elda saman.
  • Elva gerði pasta og ég gerði sósuna...og þetta heppnaðist bara stórkostlega hjá okkur, og við borðuðum þetta með bestu list
  • Edda kom svo til okkar, og Sigþór bættist svo í hópinn..
  • Við kláruðum að taka okkur til, fórum í Singstar og höfðum það gaman, og tókum svo Taxa niðrí Sjalla :haha:
  • Páll Óskar þeytti skífum, eins og flestir ættu að hafa gert sért grein fyrir (þeas hér í fyrri bloggunum mínum) og ég hef bara sjaldan upplifað ananð eins! það var svo ógeðslega gaman og mikið af fólki....og stemmningin...váá!! Ég á bara ekki orð!!
    • Við Elva fengum boð um að fara í  þrí-some :lol: En við afþökkuðum... Enda ekki kannski beint besta pikk-upp línan frá enihverjum "gömlum" kalli (sem hefur pottþéttekki verið nema sona 2 árum eldrei en við :$ ) :
      Hey ég þori að veðja að þið hafið aldrei farið í þrísome!!

      Jakk.. heheh
  • Fengum svo far heim með vini Elvu og Höllu, sem skutlaði þeim líka heim seinast þegar við fórum á djammið... hehe
Sunnudagur
  • Halla gisti hjá mér aftur og við vöknuðum um 1-2 leitið
  • Klæddum okkur og löbbuðum fyrst í Strax og svo til Elvu að ná í dótið okkar.
  • Fórum svo til Eddu og horfðum smá á Nágrana, pöntuðum okkur síðan mat á Jón Sprett og náðum í hann..
  • Borðuðum síðan matinn og horfðum á In Her Shoes
  • Við Halla fórum svo heim og ég gerði ekki neitt, fór í sturtu og borðaði og er ekki búin að gera neitt meira síðan ég kom heim...
Ég veit ekkert hvað ég geri í kvöld.. Örugglega bara sem minnst, þar sem ég er dauðþreytt eftir helgina og vikuna þaráður.. Veit ekki hvaða endemis þreyta þetta er sem er að hrjá mig, en ég er búin að vera eitthvað voðalega þreytt síðan snemma í vikunni :S

En ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili... ætla að fara að setja inn myndir frá helginni..;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 18:51:57 / Áróra :D

og síðan hittumst við aftur á miðri leið...!

Jæja, það er bara allt að gerast..
Vikan líðru svo hratt að maður á nánast í vandræðum með að fylgja henni..!!

Í gærkvöldi fór ég með Sigþóri og Sidda á Big Mama's house..Hún var mjög fyndin :haha: ELva og Anton komu líka í bíó og settust hjá okkur. Þannig að það var bara fjölmennt..!

Í kvöld var mér og Höllu boðið í mat til Elvu, hún ætlar að elda brauðsúpu handa okkur :D Það verður nú gaman.. Langt síðan við höfum gert eitthvað svona sniðugt...

Annars get ég eiginlega ekki beðið mikið lengur.. ég hlakka svo til að fara á Pál Óskar í Sjallnum á laugardaginn að ég get varla hamið mig!! Við Halla skruppum í bæinn um daginn og keyptum okkur föt til að fara í...og núna er allt tilbúið fyrir kvöldið...og við þurfum bara að biða og bíða og bíða...

Mamma er síðan að fara til Egilsstaða á morgun, þannig að það verður pabba-helgi um helgina :haha: það er alltaf jafn gaman...! Förum örugglega uppí fjall og pöntum pizzu og sona.. ;)

Mikið fleira er ekki í fréttum...

Ætla að skjótast á pisseríið áður en ég geri slys.. hehe

Yfir og út!

Já og það eru komnar nýjar myndir á myndasíðuna mína...

www.arora.myphotoalbum.com

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:51:19 / Áróra :D

Its such a perfect day...

Já þetta er búinn að vera æðisslegur dagur í alla staði. Ég vaknaði með sólskins-bros á vör og hefur það verið þar pikk-fast í allann dag :haha: En ég nenni ekki að skrifa hérna ritgerð um daginn, þannig að ég ætla að hafa þetta í punktum :D
  • Fór í skólann- einn tíma og svo eyðu og svo einn tíma.
  • Eyddi eyðunni með sjálfri mér.. í Glerártorgi, Blómaval og Bakaríi. Hef aldrei skemmt mér jafn vel alein!!
  • Fór svo í vinnuna beint eftir skóla, þar sem litlu börnin biðu mín í röðum :D Þessi litlu rassgöt...gæti étið sum af þeim..!
  • Fór síðan í BodyStep með Höllu minni. Hitti þar líka Ellen og aðrar MA-gellur ;) (fyrsti tíminn sem ég fer í í langann tíma, já eða bara fyrsta ferðin í rætkina hjá mér í langann tíma...og ég get ekki sagt að þolið mitt sé beint uppá sitt besta :$ ég sá mig fyrir mér liggandi í gólfinu á tímabili :!: )
  • Síðan lá leiðin heim þar sem ég fór í bestu sturtu sem ég hef tekið í langann tíma.!! Var með útvarpið með og söng hástöfum: Why Does It Always Rain On Me og All Out Of Luck :haha:
  • Tók mig til, og fór til Sigþórs, þar sem við horfðum á Madagascar! Fæ bara ekki leið á þessari mynd...!!
  • Fór svo heim og er bara búin að vera að spjalla við ma&pa og svona :)
En annars leið seinasta vika bara...eins og venjulega.. Man ekkert hvað ég gerði merkilegt í seinustu viku... En helgin var alveg æði..!! Ætla ekki heldur að skrifa um hana í samfelldu máli, þar sem það gæti orðið nokkrar blaðsíður og enginn mundi nenna að lesa það... En hér er helgin:

Föstudagur:
  • Skóli frá 8-2
  • Fór í bæinn með Elvu eftir skóla.. Enda bongóblíða úti og allir í bænum.
    • Ætlaði að gera feit innkaup, en beilaði á því hehe
  • Fór að vinna frá 4-hálf 8
  • Ég, mamma og Sigríður skruppum síðan í blómabúð að bjarga afmælisgjöf
  • Ég og Elva fórum að passa Steinunni & Tuma kl 9-2
    • Sætu sætu.!! Tumi kom á móti mér hlaupandi, knúsaði mig og sagði: Áóa komin.....Áóa komin! :haha:
    • Við horfðum á Múmínálfana og ég lék aðeins við börnin...
    • Komum þeim í rúmið og horfðum á Idol, sem ég tók upp.(þau eru svo ótæknivædd, ekki með stöð 2 :$ hehe )
  • Við fórum heim og skiptum um föt og sjænuðum okkur aðeins..
  • Kíktum svo á Dátann til Sigþórs, en stoppuðum bara stutt
  • Skutluðum honum síðan heim og rúntuðum aðeins (Skutluðum svo m.a. bræðrum Höllu heim hehe )
  • Fórum svo heim að sofa seint og um síðir....
Laugardagur:
  • Við Elva og Sigþór skruppum í sund.
    • Ég gerði það sem ég hef aldrei þorað áður, fór afturábak nður gulu rennibrautina...:haha:
    • Við fórum í stóru-rennibrautina
    • ...og í gufu...!
  • Elva fór heim til sín og við Sigþór rúntuðum aðeins..
    • Sigþór brenndi sig á sígarettukveikjaranum..og ég hélt ég mundi missa andann úr hlátri!!
  • Sigþór fór svo að passa frændur sína og ég fór út að keyra með Eddu.
  • Pantaði mér svo ostabrauðstangir og við fórum heim til Eddu að borða þær og horfa á sjónvarpið.
  • Kíktum svo aftur út að keyra og Halla bættist í hópinn.
  • Edda fór svo heim til sín og við Halla fórum heim til mín, og ég skipti um föt.
  • Edda kom siðan og þær byrjuðu að drekka, og við tókum fullt af fyndnum myndum (sem koma von bráðar inná myndasíðuna mína)
  • Náðum í Sigþór og fórum á Oddvitann.
  • Náði síðan í Elvu og Ellen og við fórum á Oddvitann og skemmtum okkur konunglega um kvöldið..!! Ekkert smá gaman að fara eitthvað annað en á Sjallann alltaf..!
  • Við Ellen og Sigþór vorum síðan bara félagsskítar og fórum heim, og Elva og Halla urðu eftir á Oddvitanum. (Edda var reyndar farin heim)
Sunnudagur:
  • Gerði ekki neitt...hékk bara heima í leti og hafið það gott
  • Mamma keypti kökur í tilefni dagsins (ekkert sérstakt tilefni samt, nema þá að það var sunnudagur)
  • Við Halla skruppum í Hagkaup og ég keypti mér Pottþétt 10 ára :haha: Snilldar diskar.!!
  • Fórum svo heim, og ég bauð Höllu í mat.
    • á meðan við biðum eftir matum lagaði ég til og Halla var að nördast í tölvunni...
  • Borðuðum siðan lambalæri a la mamma og ég skar það :haha:
  • Horfðum svo á Madagascar og sofnuðum yfir henni...
  • Kíktum svo á rúntinn og keyptum okkur smá sælgæti hehe
Já þetta var helgin.. Nokkuð góð helgi verð ég að sega.. 8)

Annars er nú fátt að frétta... Páskafríið er allt að verða skírara og skríara og ég bara get ekki beðið.. Reydnar er bara ein ferming hjá okkur á þessu ári, og sú ferming er fyrir sunnan 1 apríl... Við erum ekki alveg búin að ákveða hvort við förum, þar sem hún er á asnalegum tíma... (klukkan 6 á sunnudagskvöldi, einmitt um það leiti sem við værum að leggja af stað heim úr bænum...:S) En þetta kemur bara allt í ljós... Pabbi kúkalabbi er að fara til Kanarí um páskana með frjálsunum, og bauð mér ekki með..!! Trúiði þessu?! Ég er ekkert smá óánægð með kallinn sko.. Það er eins gott að hann komi færandi hendi heim með eitthvað fallegt handa mér :haha:

En jæja, ég ætla að fara að sofa... er orðin vel þreytt og get ekki beðið eftir að vakna á morgun með strengi allstaðar!!!

Góða nótt ;*

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 23:50:49 / Áróra :D

Walk of live...!!

Jæja góðir hálsar og herðablöð...

 

 

 

Seinustu dagara hafa verið með eindæmum skemmtilegir..

 

 

 

Á sunnudaginn fórum við aftur í fjallið. Í þetta skiptið fóru mamma og Hrafnkatla reyndar snemma heim því Hrafnkatla meiddi sig eitthvað. Pabbi fór síðan líka snemma útaf því að hann var með æfingu í fjálsum kl 3. (asnalegu frjálsar að vera með æfingu á sunnudegi!) Þannig að ég, Kolbrá og Sigríður vorum einar eiginlega allann tímann.  Við skemmtum okkur konunglega og ég komst að því að ef maður ætlar að kynnast litlu stelpunum almennilega, þá verður maður að gera eitthvað með bara annarri í einu. Það munar alveg ótrúlega miklu.
Það var mjög fyndið einu sinni þegar Kolbrá datt, hún datt eitthvað svo skringilega, allavega var það þannig að hún lá á maganum með skíðin bæði í snjónum, og svo rann hún bara niður brekkuna og gat ekkert gert til að stoppa sig..! Þegar ég sá hana lamaðist ég algjörlega út hlátri og varð að stoppa og leggjast í snjóinn og þá loksins náði hún að stoppa sig..og ég sver það að ég hef aldrei heyrt hana hlægja jafn mikið! Í lokin var ég eiginlega hætt að hlægja af því hvernig hún datt og var farin að hlægja af hlátrinum í Kolbrá. Því miður missti Sigríður alveg af þessu, en gat samt hleigið með okkur þegar hún heyrði hláturinn í Kolbrá :haha: En svo runnum við bara hverja ferðina á fætur annarri...Tókum okkur síðan pásu og drukkum kakó og borðuðum kleinur úti í sólskininu. Það var nefnilega alveg fáránlega gott veður úti, og færðin var alveg æðissleg. Eftir kaffitímann tókum við síðan nokkrar ferðir í viðbót. Þegar lyftukortin urðu útrunnin tókum við af okkur skíðin, fylltum bílinn og brunuðum heim. Þessi ferð varð semsagt bara frábær í alla staði ;) Þegar við komum heim skiptu allir yfir í fínni fötin og fóru að laga til, því klukkan 6 komu afi&amma og Jónína&Gummi með Steinunni&Tuma í fjölskilduafmælisveisluna hennar Hrafnkötlu. Mamma eldaði dýrindis súpu sem er uppáhaldsmaturinn minn núna þessa dagana. Ég vil samt ekki kalla þetta súpu, því þetta er svo miklu meira en það! Ég ætla nú samt ekki að fara útí einhverjar útskýringar, ég verð bara að elda þetta einhverntíman og halda matarboð :haha: Eftir matinn fórum ég, Halla, Elva og Sigþór á videoleigu og leigðum Deuce Bigalow 2 og fórum svo heim og horfðum á hana. Anton bættist síðan fljótlega í hópinn J Við skemmtum okkur auðvitað ljómandi vel, enda myndin bara með fyndnari myndum sem ég hef séð!!! Ég skutlaði síðan Elvu og Antoni heim og ég Halla og Sigþór rúntuðum soldið. Mjög gaman, eins og alltaf ;)

 

 

 

Í gær vaknaði ég aðeins of seint :/ Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég nú samt alveg átt að komast í skólann á réttum tíma. En nei, Áróra auli gleymdi að taka skíðin og brettið og allt það dót úr bílnum á Sunnudaginn, þannig að ég mátti bara gjöra svo vel að taka það allt útúr bílnum á mettíma. Það hófst loksins og ég mætti bara aðeins of seint í tíma. Skóladagurinn leið, eins og venjulega.. en endaði síðan með því að ég sleppti seinustu 40 mínútunum og fór heim að gera ekki neitt. Er nefnilega búin að vera eitthvað slöpp alveg síðan á laugardaginn, eftir fjallið :S Vona bara að þessi bölvaða pest sé ekki að taka sig upp aftur, og ég sem var næstum búin að losna við hana! En ég fór bara heim og gerði ekki neitt allann daginn.. Þangað til um sona 9 um kvöldið, þá kom Halla til mín og við horfðum á Madagascar, borðuðum popp og drukkum einhvern skrítin berjadjús. Þessi mynd er náttúrulega bara snilld, og ekkert annað!! Það er nú samt meira en að sega það að ætla að fá þessa blessuðu mynd lánaða hjá Hrafnkötlu. Ég gerðist nefnilega svo góð að ég gaf henni hana í afmælisgjöf. En þótt ég hafi verið “besta systir mín” í alveg næstum því heilann dag, þá er ekki hægt að taka það í mál að ég fái þessa mynd lánaða.  Endaði með því að ég tók hana bara, bað ekkert um leifi.. :D hehe En ég get þó allavega huggað mig við það að ég hitti alveg beint í mark með þessari gjöf :haha:


 

 

 

Í dag fékk ég far í skólann með henni Höllu minni :D Skóladagurinn var ágætur : Fékk loksins útúr spænskuprófi , las upp fyrirlestur í sögu og sló í gegn með hósti og öðru tilheyrandi, skeit á mig  í ljóða”krufningu” í íslensku og sló í gegn með gömul svör við spurningum í ensku :haha: Merkilega misheppnaður dagur eitthvað... En svo eftir skóla fór ég heim og fékk mér aðeins að borða og svona. Síðan var vinna frá 5- hálf 8. Alveg fáránlega lítið að gera, sem var bara mjög þægilegt. Eftir vinnu ætlaði ég síðan heim í sturtu, en einhvenvegin ætlaði allt að trufla mig. Fyrst var fólk á msn að tala við mig.. og síðan kom gestur (ekki Gestur samt.. ha ha ha góður Áróra! ) og ég þurfti auðvitað að spjalla við hann ;) Síðan ætlaði ég aðeins að kíkja í tölvuna áður en ég færi í sturtu... og auðvitað var nýtt fólk komið til að tala við.. Uss maður er aldeilis vinsæll... eða þannig.! Heheh En allt endaði vel, og ég fór í sturtu seint og um síðir. Annars er ég ekki búin að gera neitt í dag.. Bara liggja með rassinn uppí loft og telja á mér freknurnar..:haha:


 

 

 

Annars stendur nú ekkert til á næstunni, þannig að ég ætla bara að sega þetta gott í bili og fara að sofa.. ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 00:07:00 / Áróra :D

Aldeilis brjálað laugardagskvöld..!


Ég er búin að vera með þetta leiðindar-kvef í sona 4 vikur eða svo...og seinustu 4 vikur í lífi mínu hafa verið þær skemmtilegustu  í lífi mínu..! já eða svona næstum... ég er alveg að verðar vitlaust og ég veit ekki hvað ég á að gera til að losna við þetta.. ef einhver kann einhverja töfra-lausn við kvefi (og þá meina ég ekki hálsbólgu eða kvefi í hálsi, heldur svona stífluðu nefi, hósta útaf kláða og svoleiðis leiðindi) þá endilega segið mér frá henni..!!


Seinasta vika leið mjög hratt fannst mér. Það voru opnir dagar á þriðju- og miðvikudaginn og mér fannst það bara mjög skemmtilegt. Ég ákvað að sýna smá lit og vera dugleg að mæta í það sem var til boða, svona til að það yrði ekki mér að kenna að það væru ekki opnir dagar á næsta ári, vegna lélegrar mætingar á þessari önn.

En allavega, á þriðjudaginn fórum við Halla á Photoshop-námskeið. Það var mjög gaman, en aðeins of stutt fannst mér. Síðan eftir það fórum við stelpurnar á Daður-kennslu hjá Helgu Brögu í Gryfjunni. Það var mjög gaman, þessi kona er náttúrulega bara snillingur. Síðan voru tveir síðustu tímarnir kenndir.

 Á miðvikudaginn var bara fyrsti tíminn kenndur og svo byrjuðu ótal námskeið, svo mörg að maður nánast gat ekki valið. Við Elva skelltum okkur á Líf eftir dauðann fyrirlestur fyrst kl 10. Það var mjög gaman, fannst mér. Síðan eftir það fórum við Elva á Subway og fengum okkur að borða, og fórum svo á Súlur, og fórum í klifur með Eddu og Höllu. Það var ótrúlega gaman. Ég byrjaði á að láta plata mig í kassaklifur, og fyrst ég lét platast gertði Edda það líka :haha: Það var ótrúlega gaman og mig eiginlega langar að gera þetta aftur. Þó að ég hafi uppgötvað lofthræðslu í þessu klifri, hehe. Edda sló síðan dagmetið í kassaklifrinu, en svo kom einhver beygla og sló það... !! Hún greinilega átti sér engann stærri draum en að slá Eddu met út..og hún fór alveg óendanalega mikið í taugarnar á mér.. heheh Elva og Halla ætluðu síðan líka í kassaklifrið, en hættu síðan við.. kjúklingarnri :klikk: híhihi
En já, síðan fórum við allar í veggja-klifur. Það var ótrúlega gaman. Ég og Edda vorum saman og Halla og Elva. Þetta var geðveikt gaman og ég komst alveg uppá topp :haha: reydnar komust margir uppá topp :$ En svo eftir klifrið fórum við Elva aftur uppí skóla og náðum hálfum miðilsfundinum sem var í gangi. Það var alveg stútfullt þarna þannig að við þurftum að standa :S En það var samt mjög gaman og ég er alveg ákveðin í því að fara á sona fund einhverntíman, þá fara á einka-fund.

Svo er vikan bara búin að líða eins og venjulega, nema þá kannski að ég fór í klippingu á fimmtudaginn og hárið á mér breyttist ekki neitt. Toppurinn er jú aðeins styttri, en það er nú varla sjáanlegur munur :( og ég sem ætlaði að láta breyta eitthvað. En það verður bara að bíða þangað til næst ;)

Í dag vaknað ég um 11 leitið og fór aðeins að keyra með Eddu, náðum svo í Höllu í vinnuna og fórum í Bakarí að fá okkur að borða :haha: Síðan fór ég heim og tók mig til, og síðan brunuðum við mamma,pabbi, Kolbrá og Hrafnkatla upp í fjall og fórum á skíði. Ég ákvað að prófa skíðin núna, enda langt síðan seinast. Fyrst var ég alveg eins og belja á svelli, vissi ekkert hvað átti að fara hvert... En svo þegar við fórum í fyrsta skiptið út lyftunni kom þetta allt í einu og mér leið eins og ég hefði bara alltaf verið á skíðum :haha: Við skemmtum okkur auðvitað konunglega, og enginn meiddi sig neitt mikið. Við mamma gerðum reyndar eina heiðarlega tilraun til að fara í halarófu á stökkpall (sem var ekki allur þar sem hann var séður) og fórum á alveg fljúgandi ferð. Mamma fór á undan og hún svoleiðis flaug uppí loftið, hef sjaldan séð annað eins...! En eins og mig grunaði, um leið og hún fór í loftið, þá náði hún ekki að lenda á fótunum og flaug á rassinn, hausinn og nefið allt í einu og lá í snjónum í einum keing þegar ég kom á fljúgandi ferð á stökkpallinn, sá hana þarna emjandi úr hlátri og þá missti ég allann kjarkinn, flaug uppí loftið og steypti mér síðan niður...og meiddi mig í rassinum. :/ Hehehe en þetta var bara fyndið.. Fleira gerðist kannski ekki beint frásögu færandi.. En það var samt mjög gaman. Komum síðan heim um 5 leitið og síðan þá hafa vöðvarnir mínir verið í verkfalli og ég búin að vera hálf dösuð eitthvað. Í kvöld er ég semsagt bara búin að hanga heima og gera ekki neitt, horfa á sj´pnvarpið í faðmi fjölskildunnar, borða ís og svona..:D Sem er ágætt af og til..

En annars hef ég svosem ekkert að tala um, mér er farið að svima, einhverra hluta vegna..og er hætt að geta skrifað það sem ég ætla að skrifa..

 En kvöldið er ungt og kannski maður skreppi eitthvað út, svona til að sýna að maðru sé ekki alveg dauður..

Áróra kveður ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 20:23:15 / Áróra :D

heppin??

Eftir allt sem er búið að ganga á hérna undanfarið, þá kemst ég ekki hjá því að velta því fyrir mér hvað ég er ótrúlega heppin.

  •  Ég á frábæra foreldra og sambandið á milli okkar er bara æðisslegt, gæti ekki verið betra.
  • Ég á 3 "litlar", heilbrigðar systur (sem er allsekkert sjálfsagður hlutur)
  • Ég á 2 afa og 2 ömmur sem eru bæði í fullu fjöri og mér þykir afskaplega vænt um þau öll :haha:
  • Ég á eina langömmu sem er orðin 91 árs og býr ennþá heima hjá sér og er frísk sem unglamb. Vildi að ég gæti heimsótt hana oftar, en þar sem hún býr í Reykjavíkinni þá get ég það ekki.
  • Ég á heimsins bestu vinkonur sem eru alltaf með útbreytt fangið þegar maður þarf þess og standa alltaf við bakið á manni.
  • Ég á fjöldann allann af frændsystkinum og frænkum og frændum sem öll eru heilbrigð og létt-geggjuð :haha:

Það eru allsekki allir sem eru svo heppnir að eiga heilbrigða foreldra,systkini og ættingja. Maður gerir sér ekki grein fyrir því hversu ótrúlega heppinn maður er fyrr en maður sér hvað aðrir hafa það erfitt. Sumt fólk er fast í hjólastól og þarf hjálp við allt sem það vill og þarf að gera, sumir eiga öðruvísi bágt og maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað aðstandendur þessa fólks, og þau sjálf geta átt erfitt. Auðvitað reyna flestir að gera gott úr aðstæðunum sem það er í, eðlilega kannski, og það fólk vill ekki að maður vorkenni því neitt. En þegar maður horfir síðan á sína fjölskildu, og allir eru heilbrigðir og hraustir, þá getur maður ekki annað en kennt í brjósti um alla þá sem eiga svona erfitt.

Mér finnst ég líka mjög heppin með það að ég hef aldrei misst neinn mjög nákominn mér. Villi Emils og Inga, voru reyndar mér nánast sem afi og amma þegar ég var yngri, og þau eru bæði dáin... og Stefanía langamma mín líka, en það var ekki sorglegt þegar þau dóu, vegna þess að þau voru orðin svo gömul og voru öll farin að bíða eftir því að fá að deyja. Þannig að ég hef aldrei kynnst sorginni vel...Útaf því, held ég að ég loki mjög á hana, þeas sorgina. Ég reyni að hugsa jákvætt um allt slæmt sem gerist og reyni að sjá kostina í öllu, sama hversu sorglegur atburður/hluturinn er. Ég allavega kemst alveg upp með það núna, en svo er spurning hvað gerist þegar ég missi einhvern nákominn mér.. hvort ég brotni þá alveg niður, eða hvort ég finni kostina þá líka...En ég efast ekki um það að það verður mun erfiðara að finna kostina þá.

En jæja ég er búin að tuða og tuða... langaði bara að deila þessu með ykkur. Ég hljóma kannski eins og einhver gömul geit, en bloggið er til að tjá sig og ég nýti mér það :haha: Er búin að velta þessu fyrir mér í allan dag...

Afhverju ætli sumir fæðist mjög fatlaðir og geta aldrei tjáð sig, gengið eða neitt, á meðan annað fólk fæðist fullkomnlega heilbrigt..??

Afhverju ætli sumt fólk missi fullt af ástvinum, á meðan aðrir vita ekki einu sinni hvað það er að syrgja einhvern...??

....ég gæti spurt Afhverju endalaust..!!

En ég ætla nú að fara að hætta þessu... endilega commentið og látið vita af ykkur ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 17:51:24 / Áróra :D

I like to move it move it...!

Vá hvað lífið er skrítið. Um leið og maður heldur að allt sé komið í fastra skorður, þá gerist eitthvað og skemmir það allt. Núna á seinustu 2 vikum eru tveir ungir strákar búnir að deyja í bílslysum hér á Akureyri . Ég þekkti hvorugan þeirra, en ég vissi hverjir þeir voru og mér finnst ekkert smá skrítið að eiga aldrei eftir að sjá þá aftur. En þar sem ég er svo heppin að hafa aldrei misst neinn nákominn mér, þá geri ég mér enga grein fyrir því hversu mikil sorgin er hjá fjölskildum og vinum þessa stráka og ég finn mjög til með þeim. Svo dóu líka stelpurnar fyrir sunnan nýlega, 15 og 19 ára. Þetta er svo ótrúlega ósanngjarnt að sumir þurfi að kveðja svona snemma.

En að aðeins léttar tali...

Þessi helgi var frábær!

Eins og glöggir lesendur tóku eftir í seinasta blogginu mínu þá langaði mig sjúklega mikið í fjallið eftir skóla á fimmtudaginn. Einhverra hluta vegna var eins og enginn gæti farið með mér, þannig að ég var næstum búin að gefa upp alla von.. En viti menn..! Kemur þá ekki bara Sigþór og bjagar mér :haha: Við ákváðum í flíti að fara í fjallið og vera seinasta klukkutímann fyrir lokun..og það var bara mjög gaman. Ég datt bara nokkrum sinnum beint á rassinn...og mér tókst meirasega að fara úr lyftunni án þess að konan (sem var nú nánast orðin sálufélagi minn, þar sem hún skildi mín óskiljanlegu tákn um það að ég vildi að hún hægði á lyftunni á meðan við fórum úr henni) hægði á lyftunni. Tek það þó fram að í eitt skiptið leit allt út fyrir það að mér mundi takast að detta ekki, en þá danglaði Sigþór í mig sem varð til þess að ég datt.. En það er margt sem á eftir að læra á þessu blessaða bretti... Til dæmis að stoppa (án þess að detta) og beyja....Mér reyndar tókst fyrir algjöra tilviljun að beyja einu sinni..og ég var ekkert smá stolt af mér þá :haha:
Eftir fjallið fórum við bara heim og þegar ég kom heim fóru pabbi og litlu stelpurnar til Egilsstaða. Um kvöldið fórum við á rúntinn sóttum svo Sigþór og Gumma vin hans á Dátann og skutluðum Gumma heim, með erfiðismunum. Ég sver það að ég hef aldrei séð svona fulla manneskju áður..heh Eða kannski er það bara hann sem er svona fyndinn fullur..ég veit það ekki, en vá hvað hann var fyndinn fullur...!! Síðan vorum við bara eitthvað að rúnta með Sigþóri og fórum svo heim seint og um síðir.

Á föstudaginn man ég ekkert hvenær ég vaknaði eða hvað ég gerði.... Ætli ég hafi ekki bara verið heima að gera ekkert þangað til að klukkan varð 4.. Þá fórum við Sigríður í vinnuna og vorum til hálf 8. Um leið og ég var búin í vinnunni fórum við Halla út að borða á Götugrillið. Mig hafði alltaf langað til að fara þangað, og núna loksins létum við verða af því. Maturinn þarna var ekkert smá góður og ég mæli alveg eindegið með þessum stað :haha: Eftr matinn fórum við síðan í Strax og gerðum smá innkaup, fórum síðan heim og horfðum á idol...eða það sem eftir var. Ég náttúrulega má ekki missa úr þætti, þannig að ég gat ekki slitið mig frá þessu. Fyrir þá sem viljið vita það, þá vildi ég að Ragnheiður Sara dytti út á föstudaginn..Þótt hún syngi alveg vel og svona, þá fer hún svo ótrúlega í taugarnar á mér að það er bara ekkert venjulegt. En svo voru Ingó, Bríet og Nana þrjú neðstu og af þeim átti Ingó greinilega (að mínu mati) að detta út, en nei nei Nana datt út..!! Ég skil þetta ekki...ég er sko nánast reið..og sé ekkert smá eftir því að hafa ekki kosið hana!! En svo vorum við bara hér heima að klæða okkur og ég skrapp í sturtu og svona..og svo var byrjað að drekka og við skemmtum okkur konunglega, þótt að við vorum hér heima tvær að drekka hehehe en svo kom Sigþór til okkar og fór svo með okkur í Sjallann. Mamma var svo yndæl að skutla okkur :D Kvöldið var æði og það er eiginlega ekkert meira sem ég get um það sagt...Held ég hafi sjaldan skemmt mér jafn vel og ég gerði þetta kvöldið!! Stebbi var síðan svo æðisslegur að skutla okkur heim 8)

Í gær vorum við bara heima allann daginn.lágum í leiti og pöntuðum okkur hamborga og höfðm það náðugt. Ég skrapp síðan í bað um 8 leitið og horfði á Það var lagið og klæddi mig síðan um 10 leitið..hehehe soldið sein í því... Síðan labbaði Halla til mín og við löbbuðum saman í Strax og keyptum okkur nammi og mat og fórum svo heim og horfðum á Lion King 3. Síðan fórum við aðeins á rúntinn og höfðum það gaman :)

í dag vaknaði ég um 1-2 leitið og er eiginlega ekki búin að gera neitt af gagni í dag... bara vera heima að hafa það rólegt.. Ætluðum reydnar að fara á Húsavík, ég, Halla og Rósa, en svo var éljagangur og snjór og krap á veginum á leiðinni, þannig að við hættum við það. Hvað við gerum síðan í kvöld er alveg óákveðið en mig langar að gera mér glaðann dag og fara í Brynju :haha:

En þetta er orðið fínt í bili...

Lag helgarinnar: Real 2 Reel - I like to move it

Áróra has left the building

Nýjar myndir & ný myndasíða í Myndum

» 6 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 16:28:53 / Áróra :D

ekki gráta elskan mín..þó þig vanti vítamín

Alveg er það merkilegt hvað maður kemur sjálfum sér á óvart stundum...

Í gær ákvað ég allt í einu að skella mér á Krókinn eftir vinnu. Ég frétti af því að söngkeppni FNV var þar um kvöldið, þannig að ég sló til og dreif mig strax eftir vinnu.
Leiðin þangað gekk svona ágætlega, það var hálka hérnamegin við heiðina, og á heiðinni sjálfri...en svo batnaði þetta allt þegar ég kom í Skagafjörðinn :haha: Ég fór svo beint á söngkeppnina, og missti reyndar af fyrstu lögunum... En ég sat hjá Sæunni og Jónínu. Ég hitti síðan fullt af fólki sem ég hef ekki séð lengi lengi... Þórdís tók þátt í söngkeppninni og stóð sig auðvitað eins og hetja...! ;) Svo sá ég Elínborgu og Möggu og nánast alla, nema Ástu, sem voru með mér í bekk...þeas sem eru á króknum í skóla. Helgi Sæmundur vann síðan keppnina með lagi sem heitir Hann og Hún... Þetta var alveg geðveikt lag og í rauninni kom það mér ekkert á óvart að það hafi unnið. Eftir keppnina rúntuðum við aðeins, ég Sæunn, Jónínan og frænka Jónínu. Svo skruppum við aðeins á Bar-inn þar sem "allir" voru... Það reydnar voru ekki margir (reyndar kannski ekki hægt að búast við að það séu margir þar..:$ ). Stuðið þar var af mjög svo skornum skamti þannig að ég skutlaði bara Sæunni heim og hélt heim á leið. Ég var nú ekkert voða spennt fyrir því að keyra ein heim um "miðja" nótt.. (lagði af stað um 12). En það var bara að duga eða drepast... og ég keypti mér Bombu (orkudrykk) og nammi..og setti góða tónlist á fóninn og svo var það bara að
vaka heimleiðina. Sem gekk alveg ótrúlega vel...Orkudrykkurinn svín-virkaði og ég var bara komin í stuð á heiðinni. Ég verð nú reyndar að viðurkenna það að þessi drykkur var hryllilega vondur, að mínu mati..og ég ætla ekki að fá mér svona aftur fyrr en ég nauðsynlega þarf þess... En ég komst lifandi heim og hef sjaldan verið jafn fegin því að sjá rúmið mitt bíða mín :haha:

í dag þurfti ég síðan að vakna í skólann..en sem betur fer byrjaði ég klukkan 10 þannig að ég gat sofið soldið.. Ég var nú samt ekki alveg á því að vakna og lét mér vera sama þótt ég mætti aðeins of seint í íslensku..8) Ég mætti þangað þreytt og mygluð og hlustaði á nokkra fyrirlestra um Sjálfstætt Fólk.. Gleði gleði! Síðan leið dagurinn og núna loksins er ég komin í helgarfrí :D Einhverjum snillingi datt það í hug að vma mundi halda uppá afmæli Helga Magra og konunnar hans....og á morgun átti konan hans afmæli, þannig að við fáum frí :haha:

Núna langar mig síðan geðveikt mikið að fara uppí fjall...en ég hef engann til að fara með mér.. Alveg merkilegt hvað maður þekkir fáa.. eða allavega fáa sem maður getur dregið mér sér uppí fjall.hehe :P

Það er allavega of gott veður úti til að hanga hér inni.. Þannig að ég ætla bara að sega þetta ágætt..

Veriði sæl (sagt eins og maðurinn i Nýjusta tækni og vísindi sagði þetta alltaf :D)

og já...ég óska hér með eftir barni!! þarf ekkert að fá að eiga það, bara fá það lánað í smástund...:) og já það má ekki vera eldra en 5 ára ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 18:13:41 / Áróra :D

Gasalega er þetta lekkert..

Já þetta var alveg ágætishelgi...Mjög róleg samt, sem er bara gott svona af og til ;)

Á föstudaginn, eftir vinnu, fór ég heim og fór í fín föt og fór svo til Eddu. Við elduðum okkur dýrindis kvöldverð og horfðum á Idol. Elduðum okkur kjúklingaborgara, sem voru ekki svo slæmir...en venjulegu eru nú samt betri. Svo gerðu við okkur franskar og ávaxtasalat..hehe það passar kannski ekki alveg saman..en þetta var nú samt mjög gott :haha: Svo kom Halla til okkar rétt áður en úrslitin komu, og við vorum allar sammála með það að þótt að Eiríkur hafi sungið ótrúlega fallegt lag, þá átti hann alveg pottþétt að detta úr núna. Eftir Idol vorum við bara eitthvað að spjalla og svona...og svo allt í einu var klukkan orðin 2 og Edda sofnuð í sófanum...þannig að við Halla fórum bara aðeins á rúntinn áður en við fórum heim að sofa..:)

Á laugardaginn vaknaði ég um 2 leitið.. vá hvað það var gott að sofa út!! Svo gerði ég bara ekkert, þangað til um 5 leitið fórum við Edda og Elva út að keyra. Kíktum aðeins á Höllu á elliheimilið og héldum svo áfram að keyra.. Kom svo heim rétt tímanlega í kvöldmatinn. Um kvöldið skutluðum við Elva Sidda og Sigþóri eitthvað smá og fórum svo á Jón Sprett og tókum okkur mynd á leigu, tókum The Perfect Catch og Elva fékk sér ostabrauðstangir..Það eru bara bestu ostabrauðstangir í heimi þarna..!! Svo fórum við heim, horfðum á myndina með mömmu og gerðum svo einn geisladisk og vorum bara eitthvað að gera... og fórum svo pínu á rúntinn áður en við fórum heim.

Á sunnudaginn vaknaði ég aftur um 2 leitið.. Gerði nú eitthvað lítið um daginn.. Það var afmæli hér heima og ég hjálpaði eitthvað aðeins til með það, og fór svo út að keyra með Eddu og Elvu. Kom síðan heim um kvöldmatarleitið og fékk mér að borða og svona.. Svo fórum við Edda á Jón Sprett og tókum okkur mynd á leigu... The Perfect Man ( við vorum allar í þessum Perfect myndum..hehe) Við horfðum síðan á hana og spiluðum spil sem hefur hlotið það fallega nafn rantantan :haha: Síðan var endursýning af Idol og auðvitað gat ég ekki farið heim fyrr en það var búið...um 1 leitið :/ hehe

Í dag var síðan skóli frá 10-4 og svo vinna til 5 og núna veit ég ekkert hvað ég á af mér að gera.. var nefnilega í sálfræði áðan og varð hálf...eða ekki hálf..heldur varð mér frekar óglatt :/ og núna líður mér mjög skringilega..

En allavega...ég nenni ekki að skrifa meir...

Bæææ :P


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 21:59:29 / Áróra :D

Reise Reise...!!

það er bara allt í gangi allt í einu núna.. Þannig að þetta blogg  verður svolítið sona hingað og þangað...;)

Í gær gerðist nokkuð sem ég hef aldrei lent í áður.. Ég var ein í vinnunni, því Sigríður var, og er, veik. Ég hélt að það mundi nú sleppa til svona einu sinni.. Þetta byrjaði nú bara rólega, nokkur börn komu og öll svona 4 ára þannig að maður var nú ekki mikið að gera.. en svo allt í einu ringdi börnum þarna og það fylltist allt og ég náttúrulega missti alveg tökin á þessu... Við erum að tala um það að það voru 2 strákar þarna sem voru að meiða alla í kringum sig, hendandi dóti og í eltingaleik alveg þvers og krus..og svo voru allir hinir að koma og klaga þá..,,Þessi strákur lamdi mig" ,,þessi strákur var að henda dóti í systir mína" og svo framvegis.. og svo voru nokkrar litlar stelpur sem þurfti að hafa auga með... og síðan voru nokkrara stelpur að hoppa úr stiganum (sem er bannað) og svo voru náttúrulega fleiri börn sem fór ekki jafn mikið fyrir.. Allt í allt voru þetta rúm 20 börn og ég var ein með þau öll :| En svo meiddi einn strákurinn sig og bað um plástur, þannig að ég fór fram og þá sáu konunar í afgreiðsluni að það var allt að verða vitlaust þarna inni, þannig að ein kom og hjálpaði mér og ég bað Höllu um að koma og aðstoða mig..sem hún gerði :haha: En um leið og Halla kom voru flestir að fara eða farnir, þannig að ég fékk bara félagsskap 8) Þetta var alveg sérlega skemmtileg upplifun...vona nú samt að ég upplifi þetta ekki aftur.

Á þriðjudagskvöldið gerðumst við Halla heilsusamlegar og skruppum í sund í Þelamörk. Við vorum alveg vissar um að við yrðum einar í sundi, en allt kom fyrir ekki. Það var bara múgur og margmenni..eða svona nánást..hehe T.d. systur mínar (Kolbrá og Hrafnkatla) voru þar með pabba. Eftir sundið tókum við nokkrar beyjur og fengum okkur sjeik :haha:

Árshátíðin er á morgun....og ég ætla ekki. Maður fær nú smá samviskubit, þar sem fólk er að hafa mjög mikið fyrir þessu og svo heyrist manni á öllum að það sé enginn að fara. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Davíð Þór kynnir og ballið á eftir með Todmobil.
En í staðin fyrir að fara á árshátíðina ætlum við Edda að elda saman og horfa á Idol.  Við Edda skruppum einmitt í Nettó í dag að verlsa inn fyrir annaðkvöld. Við keyptum kjúklingaborgara, sem við höfum hvorugar smakkað áður.. Við bara vonum að það sé gott ;) Síðan fannst okkru við verða að hafa salat með þessu, þannig að við keyptum í ávaxtasalat..gult epli, peru, græn vínber og jarðaber. Föttuðum það síðan að allt, nema jarðaberin, er gænt...hehe þannig að við ætlum að útvega okkur lagið: ég er svo græn. og hafa það lag kvöldins.. :haha:
En já svo þegar Halla verður búin að vinna á morgun, ætlar hún að koma til okkar og eiga með okkur góðar stundir :D Það er alltaf jafn gaman þegar við gerum eitthvað saman..sama hversu hversdagslegt það er sem við gerum..eða það finnst mér. Elva verður þó fjarri góðu gamni, þar sem hún ætlar á árshátíðina með Antoni sínum. Hún verður þá bara með næst 8)

Ég skrapp í ljós áðan...og nældi mér í nokkrar freknur...ekki amalegt það 8) Var að eyða ljósatímanum sem ég fékk í afmælisgjöf frá Helgu Braga....hehe já svona svo fólk sé ekki að misskilja neitt, þá fékk ég miða á konukvöld með Helgu Braga (sem var haldið á afmælinu mínu) frá mínum indælu vinkonum í afmlæisgjöf í fyrra, og eftir "teitið" hér heima skelltum við okkur í Sjallann. Síðan var ég allt í einu kölluð upp og Helga gaf mér 2 ljósatíma á Abaco :haha: Alveg týpísk ég að eiga ennþá annan þeirra eftir núna, þegar nánast ár er síðan ég fékk þetta. Sem minnir mig á það að ég á ennþá eftir að fara í nuddið sem þær gáfu mér  :$ :)

Hrafnkatla og Kolbrá voru á árshátíð Glerárskóla í dag/kvöld...og Hrafnkatla kom heim færandi hendi...Þá varð hún í 2. sæti í Ljóðakeppni um ljóðaskáld Glerárskóla. Sú sem vann var í 6. bekk en Hrafnkatla er í 2.bekk svo hún er ekkert smá montin með sig...hehe og já...hér er ljóðið:

Lost

Ég stend ég er ein
ég get ekki hreyft mig
ég er föst ég stend í losti
og óttinn er búinn að taka
mig og heldur mér fastri og
ég vakna og skelf af ótta
en þetta var allt bara
draumur

Höf: Hrafnkatla Unnarsdóttir 7 ára.

Þetta er greinilega eitthvað í ættinni, þessi ljóðskáldar-hæfileiki :haha:

En annars er þetta nú orðið ágætt held ég... hehe ég hafði meira að skrifa um en ég vissi :$

Já kanski að ég komi því að ég hérna, að ég er búin að vera að hlusta á Rammstein soldið mikið í kvöld...og þetta eru bara snillingar 8| :haha:

En jæja, ég er að hugsa um að skríða uppí bólið mitt og láta fara vel um mig, og horfa á friends :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 16:26:58 / Áróra :D

jújújájá einmitt..!!

Ég er ömurleg í því að skrifa "titla" á bloggið mitt...mér dettur aldrei neitt í hug..
En ég veit eiginlega ekki alveg afhverju ég er að blogga núna, datt það bara allt í einu í hug :)

Ohh vitiði, ég er alveg ómöguleg...! Mig langar endalaust að breyta öllu... Eða nei samt ekki öllu... ég mundi t.d. aldrei vilja skipta um foreldra, vini, ættingja og þannig... En allar  minniháttar breytingar finnst mér alveg æðisslegar.
Í augnablikinu langar mig t.d. að lita á mér hárið, klippa það..breyta í herberginu mínu...kaupa mér fullt af nýjum fötum og hætta að nota þau gömlu..skipta um á rúminu mínu..hehe er samt nýbúin að því, en mig langar bara að prófa önnur rúmföt... og fullt fullt fleira. Ég er alveg ómöguleg með svona hluti sko... Um leið og ég er t.d. búin að lita hárið á mér langar mig að prófa að hafa það einhvernvegin allt öðruvísi. Reyndar langar mig mest núna að lita það eins og það var...og fara svo í klippingu og láta gera eitthvað sniðugt við hárið mitt ;)  En já svo langar mig líka mjög að prófa aðra bloggsíður..fá mér örðuvísi...t.d. myblog.com eða eitthvað...En ég er samt að hugsa um að halda mig bara við þessa síðu...allavega aðeins lengur.

En svo á leiðinni suður á föstudaginn komst ég að ýmsu um sjálfa mig...ég hafði ekkert betra að gera en að hugsa, þannig að ég tók út minn skammt af tilgangslausum hugsunum út þarna á leiðinni. Ég komst meðal annars að því að ég á mjög erfitt með það að hleypa fólki að mér...Það er eitthvað sem er samt algjörlega ómeðvitað (þar til núna) og ég hef aldrei gert mér grein fyrir því.

Já þetta er tvennt sem ég var að komast að um sjálfa mig núna nýlega... ég reyndar vissi þetta efra svosem alveg og hef vitað lengi...hehe veit ekki alveg afhverju ég er að skrifa um þetta hérna núna...:$

Ég er orðin 15 ára aftur....ég er komin með æði fyrir lagi sem ég hefði alveg pottþétt elskað þegar ég var svona 15 ára. Það heitir Everytime we touch með hljómveitinni Cascada.

En jæja, ég ætla að fara að gera eitthvað af viti, áður en ég fer að vinna :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 17:47:16 / Áróra :D

so happy together

Ég kom sjálfri mér á óvart og fór suður um helgina. Ákvað það bara allt í einu að skella mér og fór heim eftir skóla á föstudaginn, tók mig til og svo var bara lagt í hann. Fór með pabba og krökkum úr frjálsum sem voru að fara að keppa á móti. Ferðin suður gekk svosem ágætlega, fyrir utan það að ég gat ekki sofnað :( En við komum í bæinn um 10 leitið og þá var Heiða komin í UMFÍ húsið og sótti mig. Við tókum smá rúnt í bænum og fórum svo bara heim. Þegar heim var komið fengum við okkur skúffuköku og horfðum á sjónvarpið og spjölluðum saman ;) Á endanum sofnuðum við síðan...

Á laugardaginn vöknuðum við einhverntíman...hehe og fórum í kolaportið..svo fórum við í kringluna og smáralind og skoðuðum og skoðuðum.. Ég keypti mér tvo boli. Einn hvítann hlírabol, svona innanundir-bol, og svo bláan langerma bol..keypti þá báða í Retro..já og ég keypti mer lika sokka :haha: Svo var klukkan orðin hálf 6 og við fórum heim og lögðum okkur til 8..hehe vorum alveg búnar eftir daginn. Við vöknðum síðan rétt tímanlega fyrir Eurovision, pöntuðum okkur pizzu og fórum svo að horfa á keppnina. Þegar keppnin var svona um það bil hálfnuð þurftum við síðan að fara og ná í pizzuna, og það mátti nú varla tæpara standa...þegar við komum heim voru auglýsingarnar að klárast (s.s. auglýsingarnar sem voru á undan Silvíu Nótt) :haha: Silvía stóð sko alveg fyrir sínu og auðvitað rústaði hún þessi dæmi tremma í hel...Enda ekki við öðru að búast 8) En vá, ég bjóst ekki við því að hún mundi rústa þessu svona algjörlega..  70.þúsund stig af 100.þúsund er nú bara alveg nokkuð gott. Miðað við að Regína Ósk, sem var í öðru sæti, var með 30 þúsund þá var Silvía með meira en helmingi meiri stig en hún!! Þetta er alveg merkilegt.. Ég er samt alveg viss um að það er viss hópur af fólki sem finnst þetta niðurlægandi fyrir landið að senda hana í keppnina og eitthvað, en ég held að það fólk ætti bara að taka sig saman í andlitinu og sætta sig við það að við mundum hvort sem er ekki vinna þannig að afhverju ekki að senda Silvíu Nótt og reyna að hafa soldið gaman af þessu. Við mundum hvort sem er aldrei geta haldið þessa keppni...Greyjið litla Ísland er hvort sem er of lítið til þess, þannig að það er alveg óþarfi að vera í einhverri fílu, ár eftir ár, útaf því að við vinnum aldrei ;)

En já.., missti mig aðeins í Eurovison-tali :$

Eftir keppnina horfði ég á einhverja mynd..eða eiginlega eina og hálfa mynd, í sjónvarpinu... og svo fórum við á rúntinn. Alveg magnað hvað maður sér allskonar fólk þarna í bænum....Við sáum t.d. fólk sem var að herma eftir Silvíu Nótt og Homma, eða Nammi..sem var algjör Snilld. En svo fórum við bara heim að sofa..enda klukkan orðin rúmlega 3.

Á sunnudaginn vöknuðum við um hádegi og fórum í ljós. Síðan kíktum við í Smárlind, frekknótta og sætar! Fórum svo heim í sturtu og fengum okkur að borða, og fórum svo í Intersport, kringluna og smáralind...og ég keypti mér pils í Zöru :D Stutt svart, ekkert smá flott, finnst mér :haha: En svo skutlaði Heiða mér til pabba í Laugardagshöllina og ég beið þar eftir að mótið yrði búið. Það kláraðist síðan fyrir rest og við lögðum af stað heim. Ferðin heim var pottþétt helmingi lengri en leiðin þangað. Ég náði samt að sofa smá, en ég hélt við myndum aldrei komast heim. Við komumst þó fyrir rest, og ég fór aðeins á rúntin með Höllu..Sýndi henni hvað ég keypti mér og svona...;) Fór svo bara heim að sofa...

Í dag var skóli kl 10 - 4 og svo vinna til 5. Ég er reyndar búin að vera að deyja í hausnum í allann dag..þannig að ég efast um að það verði eitthvað mikið meira úr þessum degi... en það kemur bara í ljós.Ég þarf að elda kvöldmatinn og svo mætti maður nú alveg fara að laga til hérna í þessari holu minni. En já, ég er farin að gera eitthvað..

Verið'i sæl


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18